top of page
Search
  • bsí

Landsbankamót ÍA fer fram um helgina


Á laugardag hefst Landsbankamót ÍA sem fer fram í Íþróttahúsinu við Vesturgötu um helgina. Mótið er hluti af Domino's Tríó unglingamótaröðinni og gefur stig á styrkleikalista sambandsins.


Keppt verður í flokkum U13 - U19 í öllum greinum og einnig verður keppt í einliðaleik í U11.

Á laugardaginn fer fram keppni í flokkum U11 og U13 og á sunnudag fer fram keppni í flokkum U15, U17 og U19.

159 keppendur eru skráðir til leiks frá 8 félögum, BH, ÍA, Hamar, KR, TBR, TBS, Samherjar og UMFA.

Íþróttahúsið við Vesturgötu er hnetu- og fiskfrítt svæði. Það er stranglega bannað að koma með varning sem inniheldur fisk og/eða hnetur inn í húsið, t.d. harðfisk, hnetusmjör, honey nut cheerios, orkustangir og kex sem innihalda hnetur og fleira.


Einn áhorfandi má fylgja hverjum keppanda og gilda eftirfarandi reglur í húsinu vegna sóttvarna:

  • grímuskylda fyrir alla í stúku

  • áhorfendur ganga inn í íþróttahúsið frá Vesturgötu, inn í stóra anddyrið, þar verður starfsmaður sem skráir niður nafn, kennitölu og símanúmer og úthlutar viðkomandi númeruðu sæti

  • áhorfendur mega ekki skipta um sæti á mótinu

  • keppendur ganga inn í íþróttahúsið um aðalinngang, á móti sparkvelli

  • áhorfendur nota salerni í stóra anddyri, þar sem þeir koma inn

  • keppendur nota salerni í búningsklefum

  • hvorki verður boðið upp á veitingasölu né kaffi á mótinu

Smellið hér til að sjá niðurröðun og tímasetningar á mótinu.


156 views0 comments
bottom of page