MEISTARAMÓT TBR 2026, 10-11. JANÚAR
- laufey2
- 7 hours ago
- 1 min read
Opið Meistaramót TBR í badminton verður haldið í TBR dagana 10-11. janúar 2026.
Keppt verður í einliða-, tvíliða- og tvenndarleik í eftirtöldum flokkum:
Úrvalsdeild
1. deild
2. deild
Þátttökugjöld eru kr. 6.000 í einliðaleik og kr. 4.500 pr. mann í tvíliða- og tvenndarleik.
Keppni hefst kl. 09.00 báða dagana.
Keppt verður í riðlum í einliðaleik en beinn útsláttur verður í tvíliða- og tvenndarleik.
Þátttöku skal tilkynna til TBR á staðalformi BSÍ í síðasta lagi sunnudaginn 4. janúar 2026,
á netfangið tbr@tbr.is
ATH. þeir sem koma á mótið fá frítt bílastæði í móttöku TBR! Þarf að láta skrá sig fyrir hvern dag.












Comments