top of page
Search
  • laufey2

Minnum á Unglingamót TBS um næstu helgi, 1-2 okt.´22


Unglingamót TBS 2022 fer um næstu helgi og hefst mótið kl. 9 báða dagana en mótsstjórn áskilur sér rétt á að spila leiki á föstudagskvöldinu 30 sept. ef þátttaka og uppröðun kallar á slíkt (verður þá gert í samráði við félögin) Keppt verður í öllum greinum í U13 - U19 (ef næg þátttaka) og í einliða og tvíliðaleik í U11. Keppt í riðlum í einliðaleik og útsláttur í tvíliða- og tvenndarleik. Mótsgjöld: · Einliðaleikur kr 2.200 kr. · Tvíliðaleikur kr 1.900 kr. · Tvenndarleikur kr 1.900 kr. Sjoppa verður á mótssvæðinu. Á laugardagskvöldinu mun Torgið, sem er samstarfsaðili TBS, bjóða upp á pizzu- og pastahlaðborð í Bláa húsinu við Rauðkusvæðið. Hlaðborðið kostar 2.900 kr. Hvert félag sér um að rukka sína iðkendur og greiða svo í einni greiðslu til TBS. Upplýsingar um mótið veitir: Óskar Þórðarson (848-6726).


61 views0 comments
bottom of page