top of page
Search
  • laufey2

SNILLINGAMÓT BH 2023, 6 - 7 MAÍ, Í STRANDGÖTU, HAFNAFIRÐI.

Laugardaginn 6.maí og sunnudaginn 7.maí 2023 heldur Badmintonfélag Hafnarfjarðar Snillingamót BH í Íþróttahúsinu við Strandgötu fyrir unga badmintonsnillinga í aldursflokkunum U9 og U11.


Mótið er með svolítið öðru sniði en þekkist í eldri flokkum því spilað verður á minni völlum til að fá meira spil og vonandi betri upplifun fyrir krakkana. U11 spila á hefðbundnum hálfum velli. U9 spila á hálfum velli og notast við næst öftustu endalínu. Hver leikur er ein lota í 21 stig og fær hver leikmaður a.m.k. 4 leiki.


Þátttökugjald er 1.500 krónur á mann. Allir þátttakendur fá glaðning í mótslok.


Dagskrá mótsins

U9 (fædd 2014 og síðar) Spila laugardaginn 6.maí kl.9:00-11:00, mæting 8:45

U11 (fædd 2012 og 2013) Spila sunnudaginn 7.maí kl.9:00-11:00, mæting 8:45


Skráningu lýkur þriðjudaginn 2.maí.

Senda skal nöfn og kennitölur þátttakenda á excelskjali í styrkleikaröð á netfangið bh@bhbadminton.is. Sömu helgi fer Bikarmót BH fyrir U13-U19 fram. Mælum með að mjög keppnisvanir leikmenn í U11 spili frekar þar í U13 flokknum.


Bestu kveðjur f.h. Badmintonfélags Hafnarfjarðar

Anna Lilja (s. 868 6361)

bh@bhbadminton.is



27 views0 comments
bottom of page