top of page
Search
  • bsí

Síðasti dagur til að skila inn umsóknum í Afreks- og Úrvalshóp U15-U19 er 1.janúar


Þá er komið að næsta umsóknarferli í Afreks- og Úrvalshóp U15-U19. Umsóknareyðublaðið hefur verið uppfært örlítið auk þess sem nokkrar breytingar hafa verið gerðar. Er stærsta breytingin sú að mótakrafan í Afrekshóp hefur verið lækkuð úr 8 mótum niður í 6 mót yfir árstímabil. Allir þeir leikmenn sem sækja munum um í hópana munu fara í annað hvort Yoyo test og súrefnisupptökupróf. Munu þessi próf fara fram í byrjun janúar og verður valið í hópana fljótlega að þeim loknum. Síðasti dagur til að skila inn umsóknum í hópana tvo er 1.janúar 2020. Ath. að ekki er tekið við umsóknum eftir þann dag. Allir frekari upplýsingar auk umsóknareyðublaðsins má finna með því að smella hér.


61 views0 comments
bottom of page