Undanúrslit á Opna Norska mótinu
Um helgina fór fram FZ Forza Norwegian International 2026 í Sandefjörð og tóku 14 íslenskir spilarar þátt í mótinu. Mjög góður árangur náðist á mótinu og komust félagarnir Davíð Bjarni og Kristófer Darri m.a. í undanúrslit í tvíliðaleik þar sem þeir töpuðu með minnsta mun. Það var ánægjulegt að sjá þennan mikla fjölda leikmanna frá Íslandi á mótinu. Hægt er að sjá úrslit frá mótinu hérna.
Íslenskir badmintonspilarar hafa verið mjög duglegir að sækja mót erlendis og hér að neðan er hægt að sjá yfirlit yfir þátttöku Íslendinga í mótum frá því í lok júní.
RSL Finnish Youth 2026 fór fram í Espoo í Finnlandi 23.-25.október og tóku fjórir strákar frá BH þátt á mótinu en það voru þeir Aron Snær, Erik Valur, Hákon Kemp og Lúðvík Kemp. Spiluðu þeir allir einliðaleik ásamt tvíliðaleik og stóðu þeir sig mjög vel. Hér er hægt að sjá úrslit mótsins.
Um miðjan október fór fram Victor Denmark Junior 2026 og tók Eggert Þór frá TBR þátt á mótinu í einliðaleik. Eggert komst í 32 manna úrslit en datt þá út í hörkuleik. Hægt er að skoða mótið hérna.
Victor Croatioan International 2026 fór fram í Donja Stubica dagana 24. - 27. september og tóku þau Róbert Ingi og Una Hrund frá BH þátt á mótinu. Hægt er að lesa um mótið hérna.
Í byrjun júlí tóku þeir Jónas Orri og Eiríkur Tumi frá TBR þátt á FZ Forza Future Series Nouvelle-Aquitaine 2026 sem fram fór í Pessac í Frakklandi. Hér er hægt að sjá úrslit mótsins.
Í lok júní fór fram Yonex Italian Open 2026 í Bolzano á Ítalíu. Einar Óli og Lilja Bu frá TBR tóku þátt á mótinu og hægt er að skoða úrslit frá mótinu hérna.
Það má með sanni segja að íslenskir badmintonspilarar hafi verið duglegir að ferðast og taka þátt á mótinu erlendis. Þessi mikla þátttaka heldur svo áfram því það eru 8 leikmenn að ferðast í vikunni til Malmö að taka þátt á Swedish Youth Games (U17) og svo fer fram forkeppnin EM mix liða í Prag í byrjun desember.








Comments