Ísland Evrópumeistari Smáþjóða í badminton í annað sinn
Íslenska landsliðið í badminton tryggði sér sigur á Smáþjóðameistaramótinu (Small States of Europe Team Championship) með 3-1 sigri á Færeyjum í úrslitaleik í Færeyjum á sunnudag. Þetta er í annað sinn sem Ísland fagnar titlinum, en fyrri sigurinn vannst árið 2024.

Úrslitaleikurinn var spilaður á heimavelli Færeyinga, en íslenska liðið lét það ekki trufla sig.
Davíð Bjarni Björnsson og Arna Karen Jóhannsdóttir komu Íslandi yfir eftir hörkuspennandi tvenndarleik, 15-11, 12-15 og 15-12. Gustav Nilsson vann einliðaleik karla örugglega, 15-11 og 15-10. Hrafnhildur Edda Ingvarsdóttir mátti sætta sig við tap í einliðaleik kvenna, en Davíð Bjarni og Kristófer Darri Finnsson gerðu út um viðureignina með sannfærandi sigri í tvíliðaleik karla, 15-0 og 15-5. Því kom ekki til þess að tvíliðaleikur kvenna væri spilaður.
Á leiðinni í úrslitin vann Ísland Gíbraltar 5-0, tapaði fyrir Færeyjum 3-2 og vann svo Grænland og Kýpur 3-1 í báðum viðureignum.
Badmintonsamband Íslands óskar liðinu innilega til hamingju með glæsilegan árangur!








Comments