top of page
Search
  • bsí

Úrslit frá Óskarsmóti KR




Óskarsmót KR fór fram nú um helgina. Mótið er hluti af Hleðslubikar Badmintonsambandsins og gefur stig á styrkleikalista sambandsins.

Meistaraflokkur :

Í einliðaleik karla var það Eiður Ísak Broddason TBR sem vann Róbert Inga Huldarsson BH í úrslitaleiknum 21-14 og 21-11.

Í einliðaleik kvenna mættust í úrslitum Sólrún Anna Ingvarsdóttir BH og Sigríður Árnadóttir en Sigríður vann leikinn 21-13 og 21-19.

Í tvíliðaleik karla léku til úrslita Davíð Bjarni Björnsson TBR / Daníel Jóhannesson TBR gegn Daníel Thomsen TBR / Bjarka Stefánssyni TBR. Voru það Davíð Bjarni og Daníel sem unnu leikinn 21 - 16 og 21 - 17.

Í tvíliðaleik kvenna mættust Lilja Bu / Sigríður Árnadóttir TBR og Sólrún Anna Ingvarsdóttir / Una Hrund Örvar BH. Voru það Sólrún og Una sem unnu leikinn 13-21, 21-15 og 21-24.

Í tvenndarleik unnu þau Daníel Jóhannesson og Sigríður Árnadóttir TBR. Þau spiluðu gegn Róberti Inga Huldarssyni og Unu Hrund Örvar BH og unnu leikinn 21-14 og 21-16.

A flokkur :

Í einliðaleik karla sigraði Gústav Nilsson TBR en hann spilaði gegn Gabríel Inga Helgasyni BH. Gústav vann báðar loturnar 21-16.

Í einliðaleik kvenna voru þrír keppendur skráðir til leiks og var spilað í riðli og var það María Rún Ellertsdóttir ÍA sem vann báða sína leiki. Í öðru sæti var Rakel Rut Kristjánsdóttir BH.

Í tvliðaleik karla mættust í úrslitum Gabríel Ingi Helgason / Steinþór Emil Svavarsson BH og Gústav Nilsson TBR / Sigurður Patrik Fjalarsson TBR. Voru það Gabríel og Steinþór sem unnu leikinn 17-21, 21-17 og 21-14.

Í tvíliðaleik kvenna léku til úrslita María Rún Ellertsdóttir ÍA / Rakel Rut Kristjánsdóttir BH og Halla Stella Sveinbjörnsdóttir / Irena Ásdís Óskarsdóttir BH. Voru það Halla Stella og Irena Ásdís sem unnu leikinn 21-15 og 21-17.

Í tvenndarleik mættust Sigurður Patrik Fjalarsson / Eva Margit Atladóttir TBR og Gústav Nilsson / Guðbjörg Jóna Guðlaugsdóttir TBR. Voru það Gústav og Guðbjörg sem unnu leikinn 21-9 og 21-14.

B flokkur :

Í einliðaleik karla mættust í úrslitum Eiríkur Tumi Briem TBR og Ásgeir Andri Adamsson Samherja. Var það Ásgeir sem vann leikinn 21-18 og 21-12.

Í einliðaleik kvenna var spilað í fjögurra manna riðli og var það Natalía Ósk Óðinsdóttir BH sem vann alla sína leiki. Í öðru sæti var Halla Stella Sveinbjörnsdóttir BH en hún vann tvo leiki en tapaði einum.

Í tvíliðaleik karla spiluðu Haukur Þórðarson TBR / Stefán Alfreð Stefánsson Aftureldingu og Guðmundur Adam Gígja / Jón Sverrir Árnason BH til úrslita. Voru það Guðmundur og Jón Sverrir sem unnu leikinn 16-21, 21-15 og 21-10.

Ekki var keppt í tvíliðaleik í B.flokki kvenna.

Í tvenndarleik léku til úrslita Jón Sverrir Árnason BH / Natalía Ósk Óðinsdóttir BH og Egill Magnússon Afturelding / Erla Rós Heiðarsdóttir BH. Voru það Jón Sverrir og Natalía Ósk sem unnu 22-14 og 21-13.

Með því að smella hér er hægt að skoða öll nánari úrslit frá mótinu.

Einnig er hægt að skoða stöðu á styrkleikalistum sambandsins með því að smella hér.


113 views0 comments
bottom of page