Breyting á stigakerfi, 3 lotur í 15, í stað 21. Haust 2026 (á Íslandi).
- laufey2
- 1 hour ago
- 1 min read
BWF tók þá ákvörðun nýlega að breyta stigakerfinu í badminton í 3 lotur uppí 15, í staðinn fyrir 21.
BE og BWF breytingin tekur gildi 4. janúar 2027.
En á Ársþingi BSÍ í sumar var tekin sú ákvörðun að taka þessa breytingu upp strax í haust á öllum mótum BSÍ (sem eru á mótaröðinni) og því tekur þessi breyting gildi hjá okkur á fyrsta badmintonmóti haustsins, Einliðaleiksmóti TBR, föstudaginn 4 sept. 2026.
Búið er að uppfæra Leikreglur fyrir badminton (á íslensku) á heimasíðu BSÍ (undir Lög og reglugerðir)
Breytingin er þannig;
Hver lota er uppí 15 stig
Hlé er þegar 8 stigi er náð
Ef spila þarf oddalotu (þriðju lotu) þá er skipt um vallarhelming þegar 8 stiginu er
náð.
Ef jafnt er 14 - 14, þá þarf að vinna með 2 stigum, hámark uppí 21 (þ.e. ef 20 20 þá
vinnur sá sem nær 21 stiginu)








Comments