Vel lukkaðar æfingabúðir um helgina
- sport008
- 20 hours ago
- 1 min read
Miðvikudaginn 5.ágúst hófust landsliðsbúðir og stóðu þær yfir til laugardagsins 8.ágúst. Á þessum fjórum dögum voru 11 æfingar og voru um 70 leikmenn sem mættu á eina eða fleiri æfingar. Æfingarnar fóru fram á þremur stöðum, það er í íþróttahúsinu við Strandgötu, TBR húsinu í Laugardalnum og í íþróttahúsinu við Lágafell í Mosfellsbæ.
Þjálfarateymi landsliðsins sáu um allar æfingarnar en það eru þau Sune Gavnhold, Arna Karen Jóhannsdóttir og Gerda Voitechovskaja (sjá mynd). Næsta landsliðsverkefni er Evrópumót U19 sem fram fer í Ungverjalandi 18.-27.ágúst en næstu landsliðsbúðir verða 15.-18.október.
Á föstudeginum var opinn fundur þar sem farið var yfir sumarið, verkefni haustsins og verkefnin sem verða á árinu 2027. Einnig var rætt um stöðu badmintonsins á Íslandi þar sem Sune fór yfir sína sýn á stöðunni og hvernig hann metur stöðuna eftir að hafa starfað sem landsliðsþjálfari núna í 7 mánuði. Mjög góðar umræður voru og stefnt er að því að hafa næsta fund föstudaginn 18.september.








Comments