Deildakeppni BSÍ - Lokadagur á morgun
- Margrét Nilsdóttir
- 3 days ago
- 1 min read
Á morgun, laugardaginn 7. mars, lýkur Deildakeppni BSÍ. Keppnin hefur verið jöfn og skemmtileg og stefnir í spennandi lokadag. Mótið fer fram í TBR húsum, Gnoðarvogi 1, og hefst kl. 10:00.
Staðan í 1. deild er afar spennandi en þar eru þrjú lið jöfn með 4 stig fyrir lokaumferðina og því allt undir í síðustu leikjum. Í 2. deild er einnig hörð barátta þar sem tvö efstu liðin eru jöfn með 6 stig. Það getur því allt gerst þegar lokaumferðin fer fram á morgun.
Verðlaunaafhending fer fram í lok dags, þegar ljóst verður hvaða lið standa uppi sem sigurvegarar.
Áhorfendur eru hvattir til að mæta í TBR til að fylgjast með spennandi leikjum og hvetja liðin áfram í lokaumferðinni.
Hér er hægt að skoða nánari úrslit og stöðu í mótinu: https://www.tournamentsoftware.com/sport/tournament.aspx?id=6655cd71-9939-45f8-8cce-976bba2aa9a9








Comments