DÓMARANÁMSKEIÐ, 21.okt.´26
Badmintonsamband Íslands heldur dómaranámskeið fyrir verðandi dómara miðvikudaginn 21. október 2026 í Íþróttamiðstöðinni í Laugardal.
Námskeiðið hefst klukkan 17:00 og stendur til 18:30 - 19:00.
Kennari námskeiðsins er Laufey Sigurðardóttir.
Eftir námskeiðið þurfa þátttakendur, sem stefna á að verða dómarar, að dæma á a.m.k. þremur mótum til að klára námskeiðið og fá afhent dómaraskírteini.
Þátttaka tilkynnist með því að senda tölvupóst til laufey@badminton.is fyrir föstudaginn 16. október 2026.
Námskeiðið er þátttakendum að kostnaðarlausu.
Stjórn BSÍ vill biðja öll aðildarfélög að hvetja fólk til að koma á námskeiðið, nauðsynlegt er að fjölga í dómarahóp okkar.
Þau félög sem eiga leikmenn í U17 og U19 ára landsliðshópum BSÍ (og ef einhverjir eru mjög áhugasamir í U15) eru vinsamlegast beðin um að hvetja þau til að koma á námskeiðið. Margir keppendur kunna ekki reglurnar nógu vel og myndu því hafa mjög gott af því að mæta á námskeiðið.
Biðjum við félögin að tilkynna um fjölda leikmanna sem mæta munu á námskeiðið.
Með von um góða þátttöku - Mótasvið BSÍ
Upplýsingar um námskeiðið veitir
Laufey Sigurðardóttir
gsm. 867-6122









Comments