Keppni á EM U15 hefst í dag
Í dag, miðvikudag 7.október hefst keppni á EM U15 í Sotra í Noregi.
Leikir Íslensku keppendanna eru á íslenskum tíma (norskur tími innan sviga):
07:10 (09:10) Kamilla Maddý Heimisdóttir spilar einliðaleik.
08:00 (10:00) Felix Krummi Lárusson og Perla Kim Arnardóttir spila tvenndarleik.
09:45 (11:45) Marínó Örn Óskarsson og Kamilla Maddý spila tvenndarleik.
10:00 (12:00) Sigrún Hekla Kjartansdóttir spilar einliðaleik.
11:45 (13:45) Felix Krummi spilar einliðaleik.
14:40 (16:40) Marínó Örn spilar einliðaleik.
16:40 (18:40) Perla Kim og Sigrún Hekla spila tvíliðaleik.
Öllum leikjum mótsins er streymt og er hægt að finna það á eftirfarandi link (6 vellir): https://www.badmintoneurope.tv/en-int/schedule

BSÍ óskar keppendum góðs gengis í leikjum dagsins.








Comments