EM U15, Landsliðsbúðir og Evrópukeppni smáþjóða í október
- sport008
- 11 hours ago
- 1 min read
Það verður nóg um að vera hjá sambandinu í októbermánuði.
EM U15 fer fram í Sotra í Noregi 07.-10.október. Landsliðsþjálfarar hafa valið fimm keppendur til að taka þátt á mótinu en þeir eru:
Felix Krummi Lárusson TBR
Kamilla Maddý Heimisdóttir TBS
Marínó Örn Óskarsson TBS
Perla Kim Arnardóttir TBR
Sigrún Hekla Kjartansdóttir TBR
Hópurinn mun ferðast til Noregs mánudaginn 5.október og þjálfarar á mótinu verða Sune og Gerda.
Um miðjan mánuðinn eða 15.-18.október fara fram Landsliðsbúðir og verða fjölmargar æfingar hjá landsliðshópunum þessa umræddu daga. Skipulag er í vinnslu og verður auglýst betur þegar það liggur fyrir.
Í lok október hefjast svo Small States of Europe (Evrópukeppni smáþjóða í badminton) en mótið í ár fer fram í Færeyjum. Mótið er dagana 30.október til 01.nóvember. Landsliðsþjálfari hefur valið átta keppendur til að taka þátt fyrir Íslands hönd á mótinu en þeir eru:
Davíð Bjarni Björnsson TBR
Einar Óli Guðbjörnsson TBR
Gústav Nilsson TBR
Kristófer Darri Finnsson TBR
Arna Karen Jóhannsdóttir TBR
Hrafnhildur Edda Ingvarsdóttir BH
Iðunn Jakobsdóttir TBR
Una Hrund Örvar BH
Hópurinn mun ferðast til Færeyja miðvikudaginn 28.október og heim aftur mánudaginn 02.nóvember. Ásamt keppendum mun Sune landsliðsþjálfari, Kristján Daníelsson Framkvæmdarstjóri og Sólveig Ósk Jónsdóttir dómari ferðast með hópnum.
Við munum flytja nánari fréttir um þessa viðburði þegar nær dregur.









Comments