top of page
Search

Ferðalagið á EM U19 að hefjast

  • sport008
  • 11 minutes ago
  • 1 min read

Í nótt (aðfaranótt sunnudags) hefst ferðalag íslenska hópsins á EM U19. Mótið fer fram í Tatabánya í Ungverjalandi og hefst þriðjudaginn 18.ágúst með liðakeppninni. Liðakeppnin klárast 22.ágúst og sama dag hefst einstaklingskeppnin og henni lýkur þann 27.ágúst.


Sex leikmenn munu keppa fyrir Íslands hönd en það eru:

  • Eggert Þór Eggertsson TBR.

  • Emma Katrín Helgadóttir Tindastól.

  • Iðunn Jakobsdóttir TBR.

  • Katla Sól Arnarsdóttir BH.

  • Óðinn Magnússon TBR.

  • Rúnar Gauti Kristjánsson BH.

Þjálfarar í ferðinni eru þau Arna Karen Jóhannsdóttir og Sune Gavnholt.


Leikir Íslands í liðakeppninni eru:

  • Þriðjudagur 18.ágúst kl 15:00 (13:00 á íslenskum tíma) við Spán.

  • Miðvikudagur 19.ágúst kl 12:00 (10:00 á íslenskum tíma) við Sviss.

  • Fimmtudagur 20.ágúst kl 09:00 (07:00 á íslenskum tíma) við Ungverjaland.


Hægt er að fylgjast með mótinu hérna á þessum síðum:


Við óskum hópnum góðrar ferðar og góðs gengis á mótinu.

 
 
 

Comments


©2017 BY BADMINTONSAMBAND ÍSLANDS. PROUDLY CREATED WITH WIX.COM

  • facebook
bottom of page