top of page
Search
  • bsí

Happdrætti Badmintonsambands Íslands 2022


Þessa dagana er í gangi sala á miðum í árlegu happdrætti Badmintonsambands Íslands til styrktar afreks og útbreiðslustarfi. Öllum iðkendum býðst að fá miða til að selja til styrktar sambandinu en safna um leið pening í eigin sjóð. Miðinn kostar 1.500 kr og fær sölufólkið 300 kr í sölulaun. Söluhæsti einstaklingurinn í hverju félagi verður verðlaunaður með 15.000 kr gjafabréfi hjá RSL. Verðlaunin í happdrættinu eru glæsileg, gjafabréf frá Icelandair og Ormsson, badmintonvörur frá RSL og gisting á Hótel Örk.


Dregið verður 22. desember þannig að takið vel á móti okkar iðkendum og styrkið okkar frábæra afreksfólk og með kaup á miða.




Upplýsingar um vinningsmiða verða birtar á badminton.is.


128 views0 comments
bottom of page