top of page
Search
  • bsí

Happdrætti Badmintonsambands Íslands 2023

Þessa dagana er í gangi sala á miðum í árlegu happdrætti Badmintonsambands Íslands til styrktar afreks og útbreiðslustarfi. Öllum iðkendum býðst að fá miða til að selja til styrktar sambandinu en safna um leið pening í eigin sjóð. Miðinn kostar 1.800 kr og fær sölufólkið 300 kr í sölulaun. Söluhæsti einstaklingurinn í hverju félagi verður verðlaunaður með 10.000 kr gjafabréfi hjá RSL. Verðlaunin í happdrættinu eru glæsileg, gjafabréf frá Icelandair, Húsgagnahöllinni, Vodafone og Ormsson, badmintonvörur frá RSL og gisting á Hótel Örk.


Aldrei hafa verið fleiri vinningar á skrá þar sem fjöldi vinninga hefur meira en tvöfaldaðst og verðmæti vinninga aukist um helming.


Dregið verður 22. desember þannig að takið vel á móti okkar iðkendum og styrkið okkar frábæra afreksfólk og með kaup á miða.


Upplýsingar um vinningsmiða verða birtar á badminton.is.

99 views0 comments

Recent Posts

See All
bottom of page