ÚRSLIT Á MEISTARAMÓTI BH OG RSL 2026, 20-22.nóv.
Meistaramót ÍA 2026 fór fram um liðna helgi, 20 - 22. nóv., í íþróttahúsinu við Strandgötu í Hafnafirði. Mótið er hluti af mótaröð BSÍ og gefur stig á styrkleikalista sambandsins. Alls voru 96 keppendur á mótinu frá 7 félögum.
Keppt var í Úrvalsdeild, 1. deild og 2. deild og keppt eftir nýju fyrirkomulagi upp í 15.
Úrslit urðu eftirfarandi:
Úrvalsdeild:
Í einliðaleik karla sigraði Ikmal Hussain Jaafar TBS og Einar Óli Guðbjörnsson TBR varð í öðru sæti.

Í einliðaleik kvenna sigraði Hrafnhildur Edda Ingvarsdóttir BH og Una Hrund Örvar BH varð í öðru sæti.

Í tvíliðaleik karla unnu Davíð Bjarni Björnsson og Kristófer Darri Finnsson TBR gull og Daníel Jóhannesson og Róbert Þór Henn TBR silfur.

Í tvíliðaleik kvenna unnu Hrafnhildur Edda Ingvarsdóttir og Katla Sól Arnarsdóttir BH gull og Arna Karen Jóhannsdóttir og Sigríður Árnadóttir TBR silfur.

Í tvenndarleik sigruðu Daníel Jóhannesson og Sigríður Árnadóttir TBR og Róbert Ingi Huldarsson og Una Hrund Örvar BH urðu í öðru sæti.

Úrslit í 1. deild :
Í einliðaleik karla vann Lúðvík Kemp BH gull og Emil Víkingur Friðriksson TBR silfur.

Í einliðaleik kvenna vann Kamilla Maddý Heimisdóttir TBS gull og Alexandra Ýr Stefánsdóttir BH silfur.

Í tvíliðaleik karla urðu Jónas Baldursson og Vignir Haraldsson TBR í fyrsta sæti og Einar Örn Þórsson og Stefán Eiríksson UMFA í öðru sæti.
Í tvíliðaleik kvenna urðu Margrét Dís Stefánsdóttir UMFA og Sigrún Marteinsdóttir TBR í fyrsta sæti og Alexandra Ýr Stefánsdóttir og Sigrún María Valsdóttir BH í öðru sæti.
Í tvenndarleik sigruðu Hákon Kemp og Katla Sól Arnarsdóttir BH og Einar Örn Þórsson og Margrét Dís Stefánsdóttir UMFA lentu í öðru sæti.

Úrslit í 2. deild:
Í einliðaleik karla vann Felix Krummi Lárusson TBR gull og Tuan Tat TBR silfur.

Í einliðaleik kvenna vann Sunna María Ingólfsdóttir UMFA gull og Erla Rós Heiðarsdóttir BH silfur.

Í tvíliðaleik karla urðu Dimitri Plugari og Óskar Ingólfsson BH í fyrsta sæti og Kristján Hrafn Bergsveinsson og Viktor Þórir Ström UMFA í öðru sæti.
Í tvíliðaleik kvenna urðu Kamilla Maddý Heimisdóttir TBS og Regína Sigurgeirsdóttir TBR í fyrsta sæti og Anna Bryndís Andrésdóttir og Sunna María Ingólfsdóttir UMFA í öðru sæti.
Í tvenndarleik unnu Birgir Hilmarsson og Sigrún Marteinsdóttir TBR gull og Arnór Tumi Finnsson ÍA og Katrín Stefánsdóttir BH silfur.

Með því að smella hér er hægt að skoða nánar öll úrslit frá mótinu og fleiri myndir á facebook síðu BH








Comments