top of page
Search
  • bsí

Happdrætti BSÍ

Þessa dagana er í gangi sala á miðum í árlegu happdrætti Badmintonsambands Íslands til styrktar afresks og útbreiðslustarfi. Öllum iðkendum býðst að fá miða til að selja til styrktar sambandinu en safna um leið pening í eigin sjóð. Miðinn kostar 1.500 kr og fær sölufólkið 300 kr í sölulaun. Söluhæsti einstaklingurinn í hverju félagi verður verðlaunaður með 15.000 kr gjafabréfi hjá RSL. Verðlaunin í happdrættinu eru glæsileg, gjafabréf frá Icelandair og Ormsson, badmintonvörur frá RSL og gisting og jólahlaðborð á Hótel Örk.


Dregið verður 2.desember þannig að takið vel á móti okkar iðkendum og styrkjið okkar frábæra afreskfólk og með kaup á miða.



Upplýsingar um vinningsmiða verða birtar á badminton.is.

36 views0 comments
bottom of page