top of page
Search

LANDSBANKAMÓT ÍA 2026, 14 - 15 MARS

  • laufey2
  • 1 day ago
  • 1 min read

Unglingameistaramót Badmintonfélags Akraness og Landsbankans verður haldið í íþróttahúsinu á Jaðarsbökkum helgina 14. – 15. mars. n.k.

 

Keppt verður í aldursflokkunum U13-U19.


Keppt verður í einliðaleik og tvenndarleik.


Mótsstjórn áskilur sér rétt til þess að sameina flokka sé dræm þátttaka. Spilað verður í geturöðuðum riðlum í einliðaleik samkvæmt nýju keppnisfyrirkomulagi BSÍ. Fyrirkomumlag tvenndarleiksins fer eftir skráningu.

Laufey Sigurðardóttir verður yfirdómari mótsins.

 

Mótsgjöld eru 3500 kr. í einliðaleik og 2500 kr. í tvenndarleik.

 

ATH! Mikilvægt er að þjálfarar styrkleikaraði sínum keppendum.

Nánari dagskrá verður gefin út þegar skráningar hafa borist.

 

Íþróttahúsið á Jaðarsbökkum er hnetu- og fiskfrítt svæði


Skráning skal send á excel skjali á netfangið; helena@ia.is 

Skráningu lýkur þriðjudaginn 3.mars.


f.h. Badmintonfélags Akraness

 

Helena Rúnarsdóttir

s. 849-7102


 
 
 

Comments


©2017 BY BADMINTONSAMBAND ÍSLANDS. PROUDLY CREATED WITH WIX.COM

  • facebook
bottom of page