Liðakeppnin búin og einstaklingskeppnin að hefjast
- sport008
- 8 hours ago
- 1 min read
Í dag, laugardag fór fram úrslitaleikurinn í liðakeppninni á EM U19 en það eru Danmörk og Frakkland sem mættust. Það fór svo að Frakkland sigraði 55-51 í oddalotu.
Íslenska liðið spilaði þrjá leiki í riðlakeppninni sem töpuðust allir 0-2. Í gær spilaði liðið sætisleik við Króata sem tapaðist líka 0-2. Í liðakeppninni var hver lota fimm leikir (2x einliða, 2x tvíliða og tvenndar) og var spilað upp í 55 stig (nýr „leikur“ þegar annað liði var komið í 11, 22, 33 og 44). Íslenska liðið átti marga góða kafla í öllum leikjunum og gerðu sitt allra besta en náðu því miður ekki að sýna sitt besta í gegnum heilan leik.
Í dag hefst svo einstaklingskeppnin og í dag spila:
Emma Katrín í einliðaleik (round 128)
Eggert og Rúnar í tvíliðaleik (round 64)
Katla og Emma í tvíliðaleik (round 64)
Á morgun sunnudag spila svo:
Óðinn og Iðunn í tvenndarleik (round 128)
Eggert í einliðaleik (round 64)
Óðinn í einliðaleik (round 64)
Iðunn í einliðaleik (round 64)
Hægt er að fylgjast með öllum úrslitum hér: https://badmintoneurope.com/web/corporate/tournament?tournament_code=3C2CF768-BB05-40CA-BDCE-A68109B5B613&tournament_tab=overview









Comments