top of page
Search

ÚRSLIT Á MEISTARAMÓTI ÍA 2026, 31.10 - 1.11

laufey2
2 hours ago
2 min read

Meistaramót ÍA 2026 fór fram um liðna helgi, 31. okt. - 1. nóv., í íþróttahúsinu við Vesturgötu á Akranesi. Mótið er hluti af mótaröð BSÍ og gefur stig á styrkleikalista sambandsins. Alls voru 60 keppendur á mótinu frá 6 félögum.


Keppt var í Úrvalsdeild, 1. deild og 2. deild og keppt eftir nýju fyrirkomulagi upp í 15.


Úrslit urðu eftirfarandi:


Úrvalsdeild:

Í einliðaleik karla sigraði Ikmal Hussain Jaafar TBS og Óðinn Magnússon TBR varð í öðru sæti.


Í tvíliðaleik karla unnu Jón Víðir Heiðarsson og Stefán Logi Friðriksson BH gull og Jón Sverrir Árnason og Rúnar Gauti Kristjánsson BH silfur.


Í tvenndarleik sigruðu Daníel Jóhannesson og Sigríður Árnadóttir TBR og Erik Valur Kjartansson BH og Lilja Dórótea Theodórsdóttir TBR urðu í öðru sæti.



Úrslit í 1. deild :

Í einliðaleik karla vann Fayiz Khan TBR gull og Emil Víkingur Friðriksson TBR silfur.



Í einliðaleik kvenna vann Emma Katrín Helgadóttir Tindastól gull og Alexandra Ýr Stefánsdóttir BH silfur.


Í tvíliðaleik karla urðu Grímur Eliasen og Jónas Orri Egilsson TBR í fyrsta sæti og Erik Valur Kjartansson og Aron Snær Kjartansson BH í öðru sæti.


Í tvíliðaleik kvenna urðu Alexandra Ýr Stefánsdóttir og Katrín Stefánsdóttir BH í fyrsta sæti og Inga María Ottósdóttir og Sunna Karen Ingvarsdóttir UMFA í öðru sæti.


Í tvenndarleik sigruðu Jón Sverrir Árnason og Alexandra Ýr Stefánsdóttir BH og Einar Örn Þórsson og Anna Bryndís Andrésdóttir UMFA lentu í öðru sæti.



Úrslit í 2. deild:

Í einliðaleik karla vann Úlfur Þórhallsson Hamar gull og Vilhjálmur Haukur Leifs Roe Hamar silfur.


Í einliðaleik kvenna vann Sigrún Hekla Kjartansdóttir TBR gull og Angela Líf Kuforiji BH silfur.


Í tvíliðaleik karla urðu Halldór Ingi Blöndal BH og Kári S. Friðriksson TBR í fyrsta sæti og Úlfur Þórhallsson og Vilhjálmur Haukur Leifs Roe Hamar í öðru sæti.


Í tvíliðaleik kvenna urðu Perla Kim Arnardóttir og Sigrún Hekla Kjartansdóttir TBR í fyrsta sæti og Angela Líf Kuforiji og Þórdís María Róbertsdóttir BH í öðru sæti.


Í tvenndarleik unnu Felix Krummi Lárusson og Sigrún Hekla Kjartansdóttir TBR gull og Ólafur Páll Bjarkason og Sunna Karen Ingvarsdóttir UMFA silfur.



Með því að smella hér er hægt að skoða nánar öll úrslit frá mótinu og fleiri myndir á facebook síðu ÍA



 
 
 

Recent Posts

See All
Ísland í úrslit á Evrópumóti Smáþjóða

Ísland mætir Færeyjum í úrslitaleiknum á Evrópumóti Smáþjóða á morgun, sunnudag kl 13:00 og hægt verður að horfa á leikinn hérna: https://www.youtube.com/@BSF1981 Ísland spilaði tvo leiki í riðlakeppn

 
 
 
Evrópumót smáþjóða

Á morgun, miðvikudag ferðast íslenski hópurinn á Evrópumót smáþjóða sem fram fer í Færeyjum. Mótið hefst á föstudagsmorgun og er spilað til sunnudags. Íslenski hópurinn ferðast svo heim á mánudag. Það

 
 
 

Comments


©2017 BY BADMINTONSAMBAND ÍSLANDS. PROUDLY CREATED WITH WIX.COM

  • facebook
bottom of page