Meistaramót BH og RSL 2026, 20-22.nóv.
Meistaramót Badmintonfélags Hafnarfjarðar og RSL verður haldið í Íþróttahúsinu við Strandgötu dagana 20.-22. nóvember 2026. Mótið er hluti af mótaröð BSÍ og gefur stig á styrkleikalista sambandsins.
Keppt verður í einliða-, tvíliða- og tvenndarleik í eftirtöldum deildum:
• Úrvalsdeild
• 1. deild
• 2. deild
Keppt verður í riðlum í einliða- og tvenndarleik en hreinn útsláttur í tvíliðaleik.
Reikna má með að keppni í einliðaleik hefjist á föstudag kl.17 og ljúki á laugardag. Tvíliða og tvenndarleikir verða spilaðir á laugardag og sunnudag en tímasetningar á því fara eftir skráningu. Nánari dagskrá verður birt þriðjudaginn 17.nóvember.
Skráningarfrestur rennur út fimmtudaginn 12.nóvember. Skráningar skulu sendar á excel skráningarformi BSÍ á netfangið bh@bhbadminton.is.
Mótsgjöld eru 6.000 krónur fyrir einliðaleik og 4.500 kr á mann í tvíliða- og tvenndarleik.
Glæsileg verðlaun að venju. Spilað verður á keppnismottum BH og boðið uppá beina útsendingu og lifandi úrslit á Youtube.
Hlökkum til að sjá ykkur sem flest í Hafnarfirði.
Badmintonfélag Hafnarfjarðar badmintonfelag.is
Nánari upplýsingar veitir: Anna Lilja s. 868 6361







Comments