top of page
Search
  • bsí

MEISTARAMÓT ÍSLANDS 2024 hefst í dag í íþróttahúsi BH við Strandgötu, í Hafnarfirði.


Meistaramót Íslands hefst dag, Sumardaginn fyrsta, 25. apríl n.k. og stendur til laugardagsins 27. apríl 2024. Mótið verður haldið í samvinnu við Badmintonfélag Hafnarfjarðar í íþróttahúsinu við Strandgötu, í Hafnafirði.


Keppt verður í öllum greinum í eftirfarandi flokkum: Úrvalsdeild, 1. deild og 2. deild.


Tímasetningarmótsins eru eftirfarandi:


  • Fimmtudag 25. apríl; kl. 09:00 - 18:30.

  • Föstudag 26. apríl; kl. 16:00 - 21:00.

  • Laugardaginn 27 apríl;

    • kl. 09:00 - Úrslit í 1. og 2. deild

    • kl. 1300 - Úrslit í Úrvalsdeild


Laugardaginn 27. apríl kl. 12:30 verða verðlaun veitt fyrir Deildakeppni

BSÍ 2023 - 2024, fyrir 1 og 2 sæti í öllum deildum.


Bein útsending verður alla helgina á Youtube rás Badmintonsambands Íslands - Badminton Iceland;


Glæsilegt lokahóf Badmintonsambands Íslands verður haldið laugardagskvöldið 27. apríl 2023 og lýkur skráningu 25 apríl. Hófið er auglýst á heimasíðu BSÍ og í íþróttahúsunum.



Mótsstjóri er Kristján Daníelsson.

Yfirdómari er Laufey Sigurðardóttir.


Hvetjum allt áhugafólk um badminton til að mæta í Hafnafjörðinn og horfa á besta badmintonfólk landsins keppa.


Allar upplýsingar um mótið má finna á Tournament Software 





BSI_Lokahof_2024-auglýsing
.pdf
Download PDF • 1.19MB

174 views0 comments

Recent Posts

See All
bottom of page