top of page
Search

Mila tekur þátt á Evrópumóti

  • sport008
  • 3 hours ago
  • 1 min read

Evrópumót heyrnalausra ungmenna fer fram í Hannover í Þýskalandi. Keppt er í 10 íþróttagreinum og er badminton ein af þeim. Mótið hófst sunnudaginn 16.ágúst með keppni í Futsal og lýkur laugardaginn 22.ágúst í öllum greinum ásamt lokaathöfn.


Mila Dovydaityte er 14 ára gömul og æfir hjá TBR. Hún mun keppa í badminton á mótinu í U17 ára flokki sem eru ungmenni fædd 2010-2012. Keppnin hefst á morgun, fimmtudag en hún ferðaðist til Hannover í gær, þriðjudag.


BSÍ óskar Milu góðs gengis á mótinu og góðrar skemmtunar. Meðfylgjandi mynd var tekin af henni á Keflavíkurflugvelli við brottför.


 
 
 

Comments


©2017 BY BADMINTONSAMBAND ÍSLANDS. PROUDLY CREATED WITH WIX.COM

  • facebook
bottom of page