top of page
Search

Minnum á Íslandsmót Unglinga 2026, 27.3 lok skráningar

  • laufey2
  • 1 day ago
  • 1 min read

Íslandsmót unglinga verður haldið í TBR húsinu, Reykjavík, helgina 10 – 12 apríl 2026.  Badmintonsamband Íslands og Tennis- og Badmintonfélag Reykjavíkur sjá í sameiningu um framkvæmd og skipulagningu mótsins.


Síðasti skráningardagur til Badmintonsambands Íslands er á morgun, föstudaginn 27. mars 2026, kl. 12:00.

 

ATH. Biðjum þjálfara að fara vel yfir sínar skráningar og tryggja að enginn hafi gleymst. Ekki verður tekið við skráningum eftir síðasta skráningardag. 

 

Athugið að skrá fullt nafn keppenda og kennitölur í skráningarskjal Badmintonsambandsins á Excel formi.  Nauðsynlegt er að félög setji allar upplýsingar rétt inn í formið (sjá dæmi), einnig styrkleikaröðun innan félags.  Ekki er tekið við skráningum á öðru formi en þessu staðlaða skráningarformi Badmintonsambands Íslands.


U13-U19 – keppt til úrslita í öllum flokkum og greinum;

Keppt verður í öllum flokkum unglinga; U13, U15, U17 og U19.

Keppt verður í A og B flokk í öllum greinum.

Leikið í einliðaleik, tvíliðaleik og tvenndarleik.


U11 – ekki keppt til úrslita – skemmtimót;

Keppt verður í einliðaleik, óháð kyni.

Stefnt er að því að leikið verði á laugardeginum 11. apríl kl. 15 til c.a. 18/19.


Skráning sendist á laufey@badminton.is 


Upplýsingar um mótið veitir Laufey Sigurðardóttir, mótastjóri BSÍ

gsm. 867-6122



 
 
 

Comments


©2017 BY BADMINTONSAMBAND ÍSLANDS. PROUDLY CREATED WITH WIX.COM

  • facebook
bottom of page