top of page
Search

ÍSLANDSMÓT UNGLINGA 2026, 10 - 12 apríl í TBR

  • laufey2
  • 54 minutes ago
  • 2 min read

Íslandsmót unglinga verður haldið í TBR húsinu, Reykjavík, helgina 10 – 12 apríl 2026.  Badmintonsamband Íslands og Tennis- og Badmintonfélag Reykjavíkur sjá í sameiningu um framkvæmd og skipulagningu mótsins.

 

Fer það eftir skráningu í mótið hvort keppni hefjist á föstudeginum eða laugardeginum. Nánari tímasetningar verða tilkynntar þegar allar skráningar hafa borist.

 

U13-U19 – keppt til úrslita í öllum flokkum og greinum;

Keppt verður í öllum flokkum unglinga; U13, U15, U17 og U19.

Keppt verður í A og B flokk í öllum greinum.

 

Leikið í einliðaleik, tvíliðaleik og tvenndarleik.

 

Í einliðaleik, í öllum flokkum, verður keppt í riðlum. Verður leitast eftir því að spila í 3ja manna riðlum þar sem einn kemst áfram og er svo hreinn útsláttur þar á eftir.

 

Í tvíliða- og tvenndarleik er fyrirkomulagið hreinn útsláttur.


U11 – ekki keppt til úrslita – skemmtimót;

Keppt verður í einliðaleik, óháð kyni.

Spilað verður í riðlum og raðað eftir styrkleika.

Leikið verður ákveðinn tími, á hvern leik. Lengdin ákveðst eftir þátttöku í mótið.

Við skráningu biðjum við þjálfara að raða leikmönnum, með númerum, eftir getu – strákar og stelpur í bland.

Stefnt er að því að leikið verði á laugardeginum 11. apríl kl. 15 til c.a. 18/19. Fyrra hollið keppir ca. kl 15-16:30 og seinna hollið ca. kl 16:45-18:15.

Nánari dagskrá og tímasetningar verða birtar þegar skráningu er lokið.

Allir keppendur fá þátttökuverðlaun. Ekki verður keppt til úrslita.

 

Óskar mótsstjórn og stjórn BSÍ eftir því að þjálfarar skrái sína leikmenn samviskusamlega í A og B flokk, í styrkleikaröð, í U13 - U19.

Þjálfarar eru beðnir að skrá sína leikmenn samviskusamlega í A og B flokk miðað við þeirra mat en jafnframt raða sínum leikmönnum í styrkleikaröð. Styrkleikanefnd BSÍ mun síðan yfirfara allar skráningar og færa á milli A og B flokks ef þurfa þykir ásamt því að ákveða röðun.

 

Mótsstjórn leggur áherslu á að allir sem skráðir eru til keppni á Íslandsmótinu séu keppnisvanir, kunni leikreglurnar og geti talið hjá öðrum.


Þátttökugjöld eru sem hér segir:

Einliðaleikur U13 - U19 = 3.500 kr.

Tvíliða- og tvenndarleikur U13 - U19 = 3.000 kr.

U11 = 3.000 kr.


Síðasti skráningardagur til Badmintonsambands Íslands er kl. 12:00 föstudaginn 27. mars 2026.

 

ATH. Biðjum þjálfara að fara vel yfir sínar skráningar og tryggja að enginn hafi gleymst. Ekki verður tekið við skráningum eftir síðasta skráningardag. 

 

 Athugið að skrá fullt nafn keppenda og kennitölur í meðfylgjandi skráningarskjal Badmintonsambandsins á Excel formi.  Nauðsynlegt er að félög setji allar upplýsingar rétt inn í formið (sjá dæmi), einnig styrkleikaröðun innan félags.  Ekki er tekið við skráningum á öðru formi en þessu staðlaða skráningarformi Badmintonsambands Íslands.

 

Yfirdómari mótsins er Laufey Sigurðardóttir og mótsstjóri er Unnur Einarsdóttir TBR.

 

 Skráning sendist á laufey@badminton.is 



 

 
 
 

Comments


©2017 BY BADMINTONSAMBAND ÍSLANDS. PROUDLY CREATED WITH WIX.COM

  • facebook
bottom of page