top of page
Search

SNILLINGAMÓT BH 2026, 2-3 MAÍ

  • laufey2
  • 7 hours ago
  • 1 min read

Laugardaginn 2.maí og sunnudaginn 3.maí 2026 heldur Badmintonfélag Hafnarfjarðar Snillingamót BH í Íþróttahúsinu við Strandgötu fyrir unga badmintonsnillinga í aldursflokkunum U9 og U11.

 

Keppnisfyrirkomulag 

U9 spila á hálfum velli og notast við næst öftustu endalínu ásamt því að net verður lækkað um ca.15 cm. U11 spila á hefðbundnum hálfum velli.  

 

Hver leikur er spilaður í 7 mínútur og ekki verða talin stig heldur áhersla lögð á að hrósa fyrir góð högg og flott spil. Sá sem ”skorar” gefur upp og mun teljari hjálpa við það. Geturaðað verður inn á velli þannig allir fá jafnt spil og jákvæða upplifun.  

Stefnt er að því að hver leikmaður fái 4-5 leiki. Í lok mótsins verður spilað fjall/hæðó/pókó.

Dagskrá mótsins 

U9 (fædd 2017 og síðar) - Spila laugardaginn 2.maí milli klukkan 9 og 13.  

U11 (fædd 2015 og 2016) - Spila sunnudaginn 3. maí milli klukkan 9 og 13.  

Reiknum með að keppni standi yfir í 2 klst. Mögulega skipt í tvo hópa ef þarf vegna fjölda.


Þátttökugjald er 2.000 krónur á mann.  Allir þátttakendur fá glaðning í mótslok.

Sömu helgi fer Unglingamót BH fyrir U13-U19 fram. Mælum með að mjög keppnisvanir leikmenn í U11 spili frekar þar í U13 flokknum.

 

f.h. Badmintonfélags Hafnarfjarðar Anna Lilja (s. 868 6361) bh@bhbadminton.is   www.badmintonfelag.is  

 


 
 
 

Comments


©2017 BY BADMINTONSAMBAND ÍSLANDS. PROUDLY CREATED WITH WIX.COM

  • facebook
bottom of page