Keppt í Para-badminton og Special Olympics badminton í fyrsta sinn
- laufey2
- 20 hours ago
- 2 min read
Íslandsmótið í Para-badminton og Íslandsleikar Special Olympics í badminton fóru fram í fyrsta sinn sunnudaginn 26.apríl 2026. Mótin fóru fram í Íþróttahúsinu við Strandgötu í Hafnarfirði og voru skipulögð af Badmintonfélagi Hafnarfjarðar og Íþróttasambandi fatlaðra. Spilað var í sömu glæsilegu umgjörðinni og var á Meistaramóti Íslands í badminton dagana á undan. Íþróttafólkið sýndi glæsileg tilþrif og fengu góðan stuðning frá áhorfendum.
Íslandsmótið í Para-badminton
Á Íslandsmótinu í Para-badminton var keppt í standandi flokki kvenna og sitjandi flokki karla. Íslandsmeistari í standandi flokki kvenna var Katrín Sunna Erlingsdóttir, BH, en í 2. sæti var Agnes Lovísa Jóhannsdóttir, ÍFR. Íslandsmeistari í sitjandi flokki karla var Hákon Atli Bjarkason, ÍFR, og í 2.sæti Nóni Sær Ásgeirsson, ÍFR.
Íslandsleikar í Special Olympics badminton
Á Íslandsleikunum í Special Olympics badminton var keppt í einliðaleik drengja 15 ára og yngri, einliðaleik karla og kvenna og tvíliðaleik óháð kyni 16 ára og eldri.
Í flokki 15 ára og yngri var ekki spilað um sæti heldur fengu allir verðlaunapening. Keppendur voru Sölvi Freyr Kárason, Janiru Dulain Gunasekara og Ísak Daði Sigurjónsson, allir frá BH. Þeir spiluð bæði sín á milli og við þjálfara og voru greinilega búnir að æfa sig vel fyrir mótið.
Í flokkum 16 ára og eldri voru leikirnir bæði jafnir og skemmtilegir og fóru sumir í framlengingu. Úrslit voru eftirfarandi:
Einliðaleikur kvenna
Eyrún Birta Þrastardóttir, BH
Dalrós Líf Ólafsdóttir, BH
Einliðaleikur karla
Jóel Bjarki Sigurðarson, BH
Kristberg Jónsson, ÍA
Gunnar Þór Snæberg, Nes
Tvíliðaleikur óháð kyni
Jóel Bjarki Sigurðarson, BH og Kristberg Jónsson, ÍA
Dalrós Líf Ólafsdóttir, BH og Eyrún Birta Þrastardóttir, BH
Nánari úrslit má finna hér á tournamentsoftware.com.
Góðir gestir veittu verðlaun
Verðlaun á mótinu veittu Valdimar Víðisson, bæjarstjóri í Hafnarfirði, Willum Þór Þórsson, forseti ÍSÍ, Anna Karólína Vilhjálmsdóttir, framkvæmdastjóri Special Olympics á Íslandi og Erla Björg Hafsteinsdóttir, formaður Badmintonfélags Hafnarfjarðar. Auk verðlaunapeninga fengu allir þátttakendur vatnsbrúsa og handklæði frá RSL á Íslandi.
Frumkvæði Sólrúnar
Keppni dagsins var haldin að frumkvæði Sólrúnar Önnu Ingvarsdóttur, þjálfara og leikmanns hjá BH. Sólrún gerði lokaverkefni í íþróttafræði í Háskóla Íslands um badmintonþjálfun fólks með hreyfihömlun, þroskahömlun og aðrar sérþarfir og hefur mikinn áhuga á að efla þjálfun þessa hóps á Íslandi.









Comments