top of page
Search

Íslandsmót unglinga 2026, hefst föstudaginn 10.apríl, kl. 17:30

  • laufey2
  • 19 hours ago
  • 1 min read

Íslandsmót unglinga 2026 verður haldið í TBR húsinu, Reykjavík, um næstu helgi 10 – 12 apríl 2026.  Badmintonsamband Íslands og Tennis- og Badmintonfélag Reykjavíkur sjá í sameiningu um framkvæmd og skipulagningu mótsins.


U13-U19 – keppt til úrslita í öllum flokkum og greinum;

Keppt verður í A og B flokk í öllum greinum.

Leikið í einliðaleik, tvíliðaleik og tvenndarleik.


Dagskráin hjá U13 - U19:

Föstudagur 10. apríl: 17:30 - c.a. 20:30

Laugardagur 11. apríl: 09:00 - c.a. 17:00

Sunnudagur 12. apríl;

Undanúrslit: 09:00 - c.a. 12:30

Úrslit: 12:30 - c.a. 16:30


U11 – ekki keppt til úrslita – skemmtimót;

Keppt verður í einliðaleik, óháð kyni.


Dagskrá U11:

Mæting kl. 15:45 niðrí sal, á velli 10 og 11 (innst til hægri)

Keppt verður frá kl. 16:00 - c.a. 17:30

Allir fá þátttökuviðurkenningar


Mikilvægt er að allir mæti á réttum tíma, amk 30 mínútum fyrir settan leiktíma.

Ef um forföll er að ræða þarf að láta þjálfara félagsins vita sem fyrst.


Upplýsingar um mótið veitir Laufey Sigurðardóttir, mótastjóri BSÍ

gsm. 867-6122



 
 
 

Comments


©2017 BY BADMINTONSAMBAND ÍSLANDS. PROUDLY CREATED WITH WIX.COM

  • facebook
bottom of page