ÚRSLIT Á REYKJAVÍKURMÓTI FULLORÐINNA 2026, 21-22.MARS
- laufey2
- 5 days ago
- 2 min read
Reykjavíkurmót fullorðinna 2026 fór fram um liðna helgi, 21-22 mars, í TBR húsinu, Reykjavík. Mótið er hluti af fullorðinsmótaröð BSÍ og gefur stig á styrkleikalista.
Keppt var í einliða-, tvíliða- og tvenndarleik og mættu 86 keppendur í mótið.
Úrslit urðu eftirfarandi:
Úrvalsdeild:
Í einliðaleik karla sigraði Daníel Jóhannesson TBR og Stefán Logi Friðriksson BH varð í öðru sæti.
Í einliðaleik kvenna sigraði Gerda Voitechovskaja BH og Iðunn Jakobsdóttir TBR varð í öðru sæti.
Í tvíliðaleik karla unnu Davíð Bjarni Björnsson og Kristófer Darri Finnsson TBR gull og Daníel Jóhannesson og Róbert Þór Henn TBR silfur.
Í tvíliðaleik kvenna unnu Sólrún Anna Ingvarsdóttir og Una Hrund Örvar BH gull og Gerda Voitechovskaja BH og Arna Karen Jóhannsdóttir TBR silfur.
Í tvenndarleik unnu Davíð Bjarni Björnsson og Arna Karen Jóhannsdóttir TBR gull og Kristófer Darri Finnsson TBR og Una Hrund Örvar BH silfur.
Úrslit í 1. deild :
Í einliðaleik karla sigraði Erik Valur Kjartansson BH og og í öðru sæti varð Bjarki Stefánsson TBR.
Í einliðaleik kvenna sigraði Lilja Dórótea Theodórsdóttir TBR og og í öðru sæti varð Alexandra Ýr Stefánsdóttir BH.
Í tvíliðaleik karla sigruðu Jón Sverrir Árnason og Rúnar Gauti Kristjánsson BH og í öðru sæti urðu Einar Örn Þórsson og Stefán Eiríksson UMFA.
Í tvenndarleik sigruðu Sebastían Vignisson og Sólrún Anna Ingvarsdóttir BH og Erik Valur Kjartansson og Angela Líf Kuforiji BH lentu í öðru sæti.
Úrslit í 2. deild:
Í einliðaleik karla vann Jón Markús Torfason TBR gull og Ástþór Gauti Þorvaldsson silfur.
Í tvíliðaleik karla urðu Ari Páll Egilsson og Egill Pálsson TBR í fyrsta sæti og Birnir Hólm Bjarnason og Hilmar Karl Kristjánsson BH í öðru sæti.
Í tvenndarleik unnu Brynjar Petersen og Lilja Dórótea Theodórsdóttir TBR gull og Kjartan Drafnarson og Sigrún María Valsdóttir BH silfur.
Úrslit í tvíliðaleik kvenna í 1. deild / 2.deild :
Í fyrsta sæti urðu Alexandra Ýr Stefánsdóttir og Sigrún María Valsdóttir BH og í öðru sæti Inga María Ottósdóttir og Sunna Karen Ingvarsdóttir UMFA .
Með því að smella hér er hægt að skoða nánar öll úrslit frá mótinu.









Comments