top of page
Search

ÚRSLIT Á ÓSKARSMÓTI KR 2026, 7-8.feb.

  • laufey2
  • 13 minutes ago
  • 2 min read

Óskarsmót KR 2026 fór fram um liðna helgi í KR heimilinu, Reykjavík. Mótið er hluti af fullorðinsmótaröð BSÍ og gefur stig á styrkleikalista.


Keppt var í einliða-, tvíliða- og tvenndarleik og mættu 55 keppendur í mótið.


Úrslit urðu eftirfarandi:


Úrvalsdeild:

Í einliðaleik karla sigraði Einar Óli Guðbjörnsson TBR og Daníel Jóhannesson TBR varð í öðru sæti.


Í tvíliðaleik karla unnu Daníel Jóhannesson og Eiður Ísak Broddason TBR gull og Daníel Máni Einarsson og Eiríkur Tumi Briem TBR silfur.


Í tvenndarleik unnu Einar Óli Guðbjörnsson og Arna Karen Jóhannsdóttir TBR gull og Eggert Þór Eggertsson og Hrafnhildur Magnúsdóttir TBR silfur.



Úrslit í 1. deild :

Í einliðaleik karla sigraði Eiríkur Tumi Briem TBR og og í öðru sæti varð Han Van Nguyen KR.


Í tvíliðaleik karla sigruðu Jón Víðir Heiðarsson og Stefán Logi Friðriksson BH og í öðru sæti urðu Daan Boelsma og Daniel Tinnion TBS.



Í tvenndarleik sigruðu Kári Þórðarson og Alexandra Ýr Stefánsdóttir BH og Einar Örn Þórsson UMFA og Katrín Stefánsdóttir BH lentu í öðru sæti.


Úrslit í tvíliðaleik kvenna í 1. deild / 2.deild :

Í fyrsta sæti urðu Alexandra Ýr Stefánsdóttir og Katrín Stefánsdóttir BH og í öðru sæti Anna Bryndís Andrésdóttir og Eva Ström UMFA .



Úrslit í 2. deild:

Í einliðaleik karla vann Magnús Bjarki Lárusson TBR gull og Stefán Eiríksson UMFA silfur.



Í einliðaleik kvenna sigraði Sigrún Hekla Kjartansdóttir TBR og í öðru sæti varð Perla Kim Arnardóttir TBR.


Í tvíliðaleik karla urðu Ólafur Páll Bjarkason og Viktor Þórir Ström UMFA í fyrsta sæti og Emil Víkingur Friðriksson og Felix Krummi Lárusson TBR í öðru sæti.


Í tvenndarleik unnu Emil Víkingur Friðriksson og Þórdís Edda Pálmadóttir TBR gull og Viktor Ström TBR og Eva Ström UMFA silfur.



Með því að smella hér er hægt að skoða nánar öll úrslit frá mótinu og fleiri myndir eru á facebook síðu KR

 
 
 

Comments


©2017 BY BADMINTONSAMBAND ÍSLANDS. PROUDLY CREATED WITH WIX.COM

  • facebook
bottom of page