top of page
Search
  • bsí

Þing Badmintonsambands Íslands er að baki


Þing Badmintonsambands Íslands fór fram í Íþróttamiðstöðinni í Laugardal í gær, 26 ágúst 2020. Þetta 50.þing fór í alla staði vel fram og var því stýrt örugglega af þingforsetanum Frímanni Ara Ferdinandssyni. Fulltrúar frá fimm héraðssamböndum og Íþróttabandalögum sóttu þingið.

Hrund Guðmundsdóttir og Irena Ásdís Óskarsdóttir gáfu ekki kost á sér til áframhaldandi stjórnarstarfa auk þess sem Helgi Jóhannesson tekur við starfi landsliðsþjálfari 1.september og víkur því úr stjórn. Arnór Tumi Finnsson, Guðrún Björk Gunnarsdóttir og Vignir Sigurðsson sitja áfram í stjórn auk Kristjáns Daníelssonar formanns.

Nýir í stjórn eru Andrés Andrésson , Guðbjörg Jóna Guðlaugsdóttir og Kristinn Ingi Guðjónsson sem voru kosin til tveggja ára.

Stjórn Badmintonsambands Íslands skipar því eftirfarandi einstaklinga :

Kristján Daníelsson, formaður

Andrés Andrésson

Arnór Tumi Finnsson

Guðbjörg Jóna Guðlaugsdóttir

Guðrún Björk Gunnarsdóttir

Kristinn Ingi Guðjónsson

Vignir Sigurðsson

Badmintonsamband Íslands þakkar fulltrúm allra aðildarfélaga, þjálfurum, dómurum, keppendum og öllum iðkendum íþróttarinnar fyrir samstarfið í vetur.

50 views0 comments
bottom of page