top of page
Search
  • bsí

Lið Drífu og Magnúsar Inga öttu kappi um helgina


Heil umferð fór fram í dönsku deildinni um helgina. Drífa Harðardóttir spilar með Hvidovre 2 en félagið spilar í 3. deild en deildin er spiluð í fjórum átta liða riðlum. Annar leikur liðsins var gegn Drive á laugardaginn en Magnús Ingi Helgason leikur með Drive. Lið Drive vann 12-1.

Drífa lék fyrsta tvíliðaleik kvenna og fyrsta tvenndarleik fyrir lið sitt. Tvíliðaleikinn lék hún með Jennifer Andersen gegn Sofie Tolstrup og Tinne Kruse. Drífa og Andersen töpuðu naumlega eftir oddalotu 21-13, 19-21, 19-21. Tvenndarleikinn lék hún með Michael Poulsen. Þau mættu Kasper Simonsen og Tinne Kruse sem unnu 21-17, 21-15.

Magnús Ingi lék annan tvenndarleik og þriðja tvíliðaleik karla fyrir lið sitt. Tvíliðeleikinn lék hann með Hugo Mussou gegn Michael Poulsen og Christian Andersen. Magnús og Mussou unnu eftir oddalotu 21-19, 16-21, 21-17. Tvenndarleikinn lék Magnús með Lea Elm Jensen. Þau mættu Benjamin Hansen og Jennifer Andersen. Magnús og Jensen unnu 21-17, 21-19.

Hvidovre 2 vann eingöngu annan einliðaleik kvenna í þessum leik KBK og Drive. Smellið hér til að sjá fleiri úrslit viðeignanna.

Eftir þessa aðra umferð þriðju deildar er Hvidovre 2 í sjötta sæti riðilsins og Drive á toppnum. Smellið hér til að sjá stöðuna í riðlinum.

Næsti leikur liðanna er laugardaginn 8. Október, Hvidovre 2 gegn Bad. Roskilde og Drive mætir Charlottenlund 2.


13 views0 comments
bottom of page