top of page
Search
  • bsí

Þjálfaranámskeið í sumar


Badmintonsamband Íslands óskar eftir þjálfurum til að taka þátt í þjálfaranámskeiðum sem verða haldin erlendis/hérlendis í sumar.

Í boði eru þrjú námskeið:

Sumarskóli Badminton Europe í Slóveníu 7. - 14. júlí North Atlantic Camp á Íslandi - óstaðfestur tími en líklega í byrjun ágúst Nordic Camp í Færeyjum 6. - 10. ágúst.

Þjálfararnir verða jafnframt fararstjórar íslensku krakkanna sem verða valin til að taka þátt í þessum verkefnum. Sumarskólinn er fyrir aldurshópinn U17, North Atlantic Camp er fyrir aldurshópana U13-U17 og Nordic Camp fyrir aldurshóp U15.

Krafist er töluverðrar þjálfarareynslu og kunnáttu. Sumarskólanámskeiðið gefur þjálfaragráðu BWF Level 1

.

Þjálfaranámskeiðin og allur ferðakostnaður eru á kostnað BSÍ.

Vinsamlegast sendið inn upplýsingar um menntun og reynslu í þjálfun. Farið verður eftir reynslu og menntun þjálfara þegar valið verður úr umsóknum.

Áhugasamir vinsamlegast hafið samband við Kjartan fyrir 5.mars


97 views0 comments
bottom of page