52 á endurmenntunarnámskeiði fyrir íþróttakennara
- bsí
- 12 minutes ago
- 1 min read
Vikuna 17.–21. ágúst sl. stóðu Badmintonsamband Íslands og Anna Margrét, íþróttafræðingur og badmintonþjálfari, fyrir endurmenntunarnámskeiðum fyrir íþróttakennara.

Námskeiðin voru haldin á Hellu, í Mosfellsbæ, á Hvammstanga og í Eyjafjarðarsveit, og var mæting afar góð – samtals tóku 52 íþróttakennarar þátt.
Markmiðið: að efla kennslu grunnatriða

Markmið námskeiðanna var að efla færni kennara í kennslu grunnatriða í badminton. Farið var yfir BWF Shuttle Time appið, sem var sérstaklega þróað og hannað fyrir íþróttakennara til að kenna badminton í tímum hjá sér.
Verkleg kennsla í fyrirrúmi
Námskeiðið var að langmestu leyti verklegt. Farið var yfir hvernig kenna má grip, uppgjöf, fótaburð og einföld högg með fjölbreyttum og nemendamiðuðum aðferðum sem henta nemendum í grunnskóla. Kennarar fengu að prófa allar æfingar á eigin skinni, og var virkilega gaman að sjá hversu áhugasamir þeir voru að spreyta sig.
Líflegar og skemmtilegar umræður sköpuðust á námskeiðunum, þar sem kennarar skiptust á reynslusögum um hvað virkar vel í badmintonkennslu hjá þeim sjálfum.
Gjöf til skólanna

Að námskeiði loknu fékk hver skóli veglega spaðatösku að gjöf, sem innihélt spaða, net og plastkúlur – dýrmætt tæki til að halda áfram að kenna badminton eftir að námskeiðinu lauk.
Framhaldið
Badmintonsambandið er afar ánægt með hvernig til tókst og finnur vel fyrir auknum áhuga íþróttakennara á badmintoníþróttinni. Stefnt er á að endurtaka leikinn að ári og bjóða þá upp á námskeið bæði á höfuðborgarsvæðinu og á landsbyggðinni.









Comments