Frábært árangur hjá Milu á EM
- sport008
- 11 minutes ago
- 1 min read
Mila Dovydaityte frá TBR tók þátt á Evrópumóti heyrnalausra ungmenna í Hannover í Þýskalandi um helgina. Badmintonhluti mótsins hófst föstudaginn 20.ágúst og lauk sunnudaginn 22.ágúst. Mila ferðaðist á mótið með Tomas föður sínum og áttu þau frábærar stundir í Hannover.
Mila keppti í einliða- og tvíliðaleik í U17 (ungmenni fædd 2010-2012) en hún er á yngsta ári í þeim flokki. Í tvíliðaleiknum spilaði hún með Anja Novosel frá Króatíu. Í tvenndarleik spilaði hún í U19 flokknum með Nour Aljahboul frá Þýskalandi.

Mila keppti alls 11 leiki á mótinu og árangur hennar var frammúrskarandi. Í tvíliðaleik endaði hún og Anja í 3.sæti og í einliðaleik varð hún í 4.sæti eftir mjög skemmtilegan og spennandi bronsleik, þar sem hún tapaði oddinum 25-27.

Við í BSÍ erum stolt af Milu og óskum henni til hamingju með árangurinn.








Comments