top of page
Search
  • bsí

Davíð Bjarni og Arna Karen í 8 liða úrslit

þrjú Íslensk pör tóku þátt í 16 liða úrslitum í dag í tvenndarleik á RSL Iceland International í badminton sem haldið er í TBR og er hluti að RIG.


Davíð Bjarni og Arna Karen áttu frábæran leik og sigruðu Jarne Schkevoigt og Julia Mayer frá Þýskalandi 21-10 og 21-12. Þau spila við Brandon Zhi Hao Yap og Annie Lado frá Englandi og kl. 16.00 í dag laugardag.

Kristófer Darri og Drífa töpuðu fyrir pari frá Englandi í oddi í hörku leik 21-15, 15-21 og 15-21.

Daníel og Sigríður töpuður fyrir pari frá Danmörku þar sem littlu mátti muna að þau næðu að knýja fram oddalotu enn leikurinn fór 15-21 og 20-22.


Í Tvíliðaleik kvenna spila Sigríður og Arna Karen við par frá Sviss. Sólrún Anna og Una Hrund spila við par frá Azerbaijan. Tvíliðaleikir kvenna hefjast kl. 12.30.


Í tvíliðaleik karla spila Kristófer Darri og Davíð Bjarni par frá Englandi/Jamaíka og Róbert Henn og Gabríel spila við par frá Úkraínu. Tvíliðaleikir Karla hefjast kl. 13.40.


Það verður fullt af flottum leikjum í dag og mælum við með því að koma og horfa.



Allar upplýsingar um leiki, tímasetningar og úrslit eru að finna á:


Einnig minnum við á streymið á youtube rás sambandsins - Badminton Icelanad Badminton Iceland - YouTube

100 views0 comments
bottom of page