top of page
Search

DEILDAKEPPNI BSÍ´26-´27, 1-2.deild

laufey2
5 hours ago
2 min read

Deildakeppni Badmintonsambands Íslands (BSÍ) er liðakeppni félaga innan vébanda ÍSÍ. Leikið skal samkvæmt reglum um Deildakeppni BSÍ. Tímabilið 2026 - 2027 verður deildakeppni í 1. og 2. deild.

 

Fyrsta keppnishelgin (1-2 dagar) verður 27 og / eða 29 nóv. 2026 hjá TBR, Reykjavík og seinni helgin (1-2 dagar) verður 5 – 7 mars 2027 hjá BH, Hafnafirði. Ef fjöldi liða verður mjög mikill þá þarf kannski að bæta inn einum degi í viðbót en það kemur í ljós eftir lok skráningar.

 

Þátttökutilkynningar ásamt upplýsingum um nafn hvers liðs, nafnalista og fyrirliða skal skila á Excel formi og berast Badmintonsambandi Íslands eigi síðar en 1. nóvember 2026 á netfangið deildakeppni@badminton.is. 

 

Helstu reglur má sjá í mótsboði, sem sent var á öll aðildarfélög og eru einnig á heimasíðu BSÍ, undir Deildó, skjöl og eyðublöð.


Röðunarnefnd BSÍ mun fara yfir skráningar og meta hvort þessar reglur, um hverjir mega spila í hvaða deild, eigi við alla leikmenn eða hvort veita eigi undanþágu. Ef félög vilja sækja um undanþágu fyrir leikmann þarf það að gerast um leið og skráning berst.

 

Við skráningu í lið skal miða við styrkleikalista fullorðinna frá 12. okt.´26 og þrátt fyrir að keppendur færist til á styrkleikalistanum þá fylgja þeir sínu liði út tímabilið.

Leikir verða sjö í báðum deildum (2MS, 1WS, 2MD, 1WD, 1XD). Raða þarf í styrkleikaröð í einliðaleik karla, miðað við nýjasta styrkleikalista fullorðinna hverju sinni.

Fjöldi leikmanna í hverju liði þarf að vera að lágmarki sex (2 konur og 4 karlar).

Leikið verður eftir breyttu stigakerfi, 3 lotur uppí 15.

 

Þátttökugjald er 50.000 kr. á hvert lið.

 

Yfirdómari Deildakeppni BSÍ er Laufey Sigurðardóttir.


Með von um góða þátttöku

Laufey Sigurðardóttir -

Mótastjóri Badmintonsambands Íslands - deildakeppni@badminton.is



 
 
 

Comments


©2017 BY BADMINTONSAMBAND ÍSLANDS. PROUDLY CREATED WITH WIX.COM

  • facebook
bottom of page