top of page
Search
  • bsí

Kári Gunnarsson og Margrét Jóhannsdóttir eru badmintonfólk ársins 2019



Stjórn Badmintonsambands Íslands hefur valið Kára Gunnarsson badmintonmann og Margréti Jóhannsdóttur badmintonkonu ársins 2019. Kári og Margrét fá viðurkenningu frá Íþrótta- og Ólympíusambandi Íslands laugardaginn 28.desember ásamt íþróttafólki annarra íþróttagreina. Við sama tækifæri munu Samtök Íþróttafréttamanna krýna Íþróttamann ársins 2019.

Kári Gunnarsson varð Íslandsmeistari í einliðaleik á árinu 2019 og var þetta áttunda árið í röð sem Kári vinnur þennan titil. Kári er sem stendur í 144.sæti heimslistans í einliðaleik karla og stefnir á að komast inn á Ólympíuleikana á næsta ári.

Margrét Jóhannsdóttir varð Íslandsmeistari í einliðaleik á árinu 2019 og var þetta fjórða árið í röð sem hún vinnur þennan titil. Margrét varð einnig Íslandsmeistari í tvenndarleik ásamt Kristófer Darra Finnssyni.

Eftirfarandi er samantekt á helstu afrekum badmintonfólks ársins 2019.

Badmintonmaður ársins 2019 - Kári Gunnarsson f. 11. janúar 1991.

Badmintonmaður ársins 2019 er Kári Gunnarsson úr Tennis- og badmintonfélagi Reykjavíkur.

Kári er Íslandsmeistari í einliðaleik karla og er þetta áttunda skiptið í röð sem hann vinnur þennan titil.

Kári hefur verið mikilvægur í landsliði Íslands undanfarin ár og spilar jafnan fyrsta einliðaleik karla í landsleikjum. Kári spilaði sinn fyrsta A-landsliðsleik árið 2010, þá aðeins 19 ára gamall. Kári hefur spilað 23 A-landsleiki fyrir Íslands hönd.

Kári tók þátt í Evrópuleikunum fyrr á árinu.

Kári stefnir á þátttöku á Ólympíuleikunum 2020 en það er heimslistinn sem ræður hverjir öðlast keppnisrétt. Kári hefur tekið þátt í 22 alþjóðlegum mótum á árinu og hefur hann náð að vinna sig mikið upp heimslistann. Þegar hann tók ákvörðun um að ætla á Ólympíuleikana var hann í 523.sæti heimslistans í einliðaleik en hann er núna í 144.sæti listans. Listinn er byggður á tíu bestu mótum leikmanna.

Kári er búsettur í Danmörku og núna í nóvember tók hann þá ákvörðun að þiggja boð í Center of Excellence sem er á vegum Badminton Europe og er staðsett í Holbæk í Danmörku. Þar býr og æfir Kári undir handleiðslu þjálfara á vegum Badminton Europe.





Badmintonkona ársins 2019 - Margrét Jóhannsdóttir f. 10. janúar 1995

Badmintonkona ársins 2019 er Margrét Jóhannsdóttir úr Tennis- og badmintonfélagi Reykjavíkur.

Margrét Jóhannsdóttir varð tvöfaldur Íslandsmeistari á árinu. Fjórða árið í röð varð hún Íslandsmeistari í einliðaleik. Margrét varð einnig Íslandsmeistari í tvenndarleik ásamt Kristófer Darri Finnssyni.

Margrét og Kristófer unnu Iceland International 2019 sem er alþjóðlegt mót en mótið er hluti af Future Series mótaröðinni. Þá komst Margrét einnig í úrslit í tvíliðaleik kvenna á sama móti með Sigríði Árnadóttur en þær enduðu í 2.sæti mótsins.

Margrét varð Hleðslubikarmeistari í tvenndarleik en leikmaður sem er efstur á styrkleikalista sambandsins í lok tímabils hlýtur þann titil.

Margrét hefur verið mjög mikilvæg fyrir íslenska landsliðið síðastliðin ár og á hún að baki 16 A-landsleiki en fyrsta A-landsleikinn spilaði hún árið 2013, þá 18 ára gömul.

Margrét var færð í Meistaraflokk aðeins 16 ára gömul en hún á að baki fjöldann allan af Íslandsmeistaratitlum í unglingaflokki, sem og í A- og B-flokki.

Margrét er sem stendur í 290.sæti heimslistans í tvíliðaleik kvenna ásamt meðspilara sínum Sigríði Árnadóttir. Í tvenndarleik er hún í 286.sæti heimslistans ásamt meðspilara sínum Kristófer Darra Finnssyni. Margrét hefur spilað á tveimur alþjóðlegum mótum á árinu en listinn er byggður á tíu bestu mótum leikmanna.




107 views0 comments
bottom of page