MEISTARAMÓT UMFA 2025, 20-21 SEPT.
- laufey2
- 8 minutes ago
- 1 min read
MEISTARAMÓT UMFA 20. og 21. september 2025 fer fram í íþróttamiðstöðinni að Varmá helgina 20 - 21 september 2025. Mótið gefur stig á styrkleikalista og er hluti af fullorðinsmótaröð BSÍ.
Keppt í Úrvalsdeild, 1. deild og 2. deild.
Keppt verður í Úrvalsdeild, 1. deild og 2. deild í öllum greinum.
Keppt verður í riðlum í tvíliða- og tvenndarleik en útsláttur verður í einliðaleik.
Stefnt er að því mótafyrirkomulagi að hver grein verði spiluð út á einum degi en raðað verður niður á daga eftir skráningu. Mótanefnd UMFA áskilur sér rétt á að spila 1 umferð í völdum greinum föstudagskvöldið 19. september, ef þátttaka og uppröðun kallar á slíkt.
Mótsgjöld eru kr. 4500 fyrir hverja grein.
Skráningu með staðalformi BSÍ skal senda á netfangið: badminton@afturelding.is.
Skráningarfrestur er til og með mánudagsins 15 september.
Stefnt er að því að birta uppröðun mótsins á miðvikudeginum 17. september.
Hlökkum til að sjá ykkur, F.h. Badmintondeildar Aftureldingar Jónatan (896-2884)

Comments