top of page
Search
  • laufey2

Minnum á Snillingamót BH, 6 - 7 maí 2023

Laugardaginn 6.maí og sunnudaginn 7.maí 2023 heldur Badmintonfélag Hafnarfjarðar Snillingamót BH í Íþróttahúsinu við Strandgötu fyrir unga badmintonsnillinga í aldursflokkunum U9 og U11.



Mótið er með svolítið öðru sniði en þekkist í eldri flokkum því spilað verður á minni völlum til að fá meira spil og vonandi betri upplifun fyrir krakkana.

U11 spila á hefðbundnum hálfum velli.

U9 spila á hálfum velli og notast við næst öftustu endalínu.

Hver leikur er ein lota í 21 stig og fær hver leikmaður a.m.k. 4 leiki.



Þátttökugjald er 1.500 krónur á mann. Allir þátttakendur fá glaðning í mótslok.



Dagskrá mótsins


U9 (fædd 2014 og síðar) Spila laugardaginn 6.maí kl.9:00-11:00, mæting 8:45


U11 (fædd 2012 og 2013) Spila sunnudaginn 7.maí kl.9:00-11:00, mæting 8:45




Bestu kveðjur


f.h. Badmintonfélags Hafnarfjarðar

Anna Lilja (s. 868 6361)

bh@bhbadminton.is



27 views0 comments

Recent Posts

See All
bottom of page