Snillingamót BH 2026
- laufey2
- 3 days ago
- 1 min read
Snillingamót BH 2026, fyrir U9 og U11 ára keppendur, fór fram um helgina í íþróttahúsinu við Strandgötu í Hafnafirði.
Keppt var í einliðaleik á hálfum velli.
Í ár var prófað nýtt keppnisfyrirkomulag til að ýta undir gleðina við að spila og taka í burtu pressuna við að vinna eða tapa. Hver leikur var spilaður í 7 mínútur og ekki voru talin stig heldur áhersla lögð á að hrósa fyrir góð högg og flott spil. Sá sem ”skoraði” gaf upp og hjálpaði eldra aðstoðarfólk við það. Geturaðað var inná velli þannig allir fengu jafnt spil og jákvæða upplifun. Stefnt var að því að hver leikmaður fengi 4-5 leiki. Í lok mótsins var spilað fjall/pókó/kóngaleikur og svo fengu allir sumarglaðning.
Mjög góð mæting var í mótið og mikil skemmtun hjá krökkunum.









Comments