top of page
Search

UNGLINGAMÓT BH 2026, 1-3 MAÍ

  • laufey2
  • 3 days ago
  • 1 min read

Unglingamót BH í badminton 2026 verður haldið um næstu helgi,  1 - 3 maí, í íþróttahúsinu við Strandgötu í Hafnarfirði. 

 

Keppt verður í tvíliða- og tvenndarleik í geturöðuðum riðlum í eftirfarandi flokkum:

 

•       U13 – fædd 2013 og yngri

•       U15 – fædd 2011 og 2012

•       U17-U19 – fædd 2010-2007

 

Riðlarnir verða getuskiptir og sér röðunarnefnd BSÍ í samráði við þjálfara um að raða í riðla. Leitast verður við að hafa 3-4 pör í hverjum riðli en það getur þó verið breytilegt eftir fjölda skráðra para. Ekki verður spilað uppúr riðlunum heldur fá sigurvegarar í hverjum riðli verðlaun.   

 

Stefnt er að því að gefa út niðurröðun með tímasetningum allra leikja miðvikudaginn 29.apríl.

 

Mótsgjaldið er 2.500 krónur á mann í hverja grein. 


f.h. Badmintonfélags Hafnarfjarðar  Anna Lilja (s. 8686361) bh@bhbadminton.is     www.badmintonfelag.is  



 
 
 

Comments


©2017 BY BADMINTONSAMBAND ÍSLANDS. PROUDLY CREATED WITH WIX.COM

  • facebook
bottom of page