Vel heppnaðar æfingabúðir að baki
- Margrét Nilsdóttir
- 8 hours ago
- 1 min read
Landsliðsæfingabúðir Badmintonsambands Íslands, sem fóru fram dagana 27. mars til 3. apríl, heppnuðust afar vel. Alls voru haldnar 22 æfingar yfir tímabilið.
Fjórir leikmenn frá Danmörku komu til landsins ásamt Sune landsliðsþjálfara og tóku ýmist þátt í æfingum eða aðstoðuðu við þjálfun.
Æfingabúðirnar gengu mjög vel og ríkti mikil ánægja bæði meðal leikmanna og þjálfara.















Comments