top of page
Search
  • laufey2

ÚRSLIT Á MEISTARAMÓTI UMFA 2022, 24-25.sept.


Meistaramót UMFA 2022 fór fram í íþróttahúsinu við Varmá í Mosfellsbæ nú um helgina. Mótið er hluti af mótaröð Badmintonsambands Íslands og gefur stig á styrkleikalista sambandsins. Alls voru 71 keppandi á mótinu og margir mjög skemmtilegir og spennandi leikir.

Úrslit í Úrvalsdeild:

Í einliðaleik karla sigraði Daníel Jóhannesson TBR og Róbert Ingi Huldarsson BH varð í öðru sæti.


Í einliðaleik kvenna vann Sigríður Árnadóttir TBR gull og Lilja Bu TBR silfur.


Í tvíliðaleik karla léku til úrslita Davíð Bjarni Björnsson og Kristófer Darri Finnsson TBR gegn Daníel Jóhannessyni og Jónas Baldurssyni TBR og þar sigruðu Davíð Bjarni og Kristófer Darri.


Í tvíliðaleik kvenna unnu Sigríður Árnadóttir og Þórunn Eylands TBR gull og Sólrún Anna Ingvarsdóttir og Una Hrund Örvar BH silfur.


Í tvenndarleik unnu Daníel Jóhannesson og Sigríður Árnadóttir TBR gull og Davíð Phuong Xuan Nguyen BH silfur.


Úrslit í 1-deild :

Í einliðaleik karla sigraði Guðmundur Adam Gígja BH og í öðru sæti varð Funi Hrafn Eliasen TBR.


Í einliðaleik kvenna vann Hrafnhildur Edda Ingvarsdóttir TBS gull og Natalía Ósk Óðinsdóttir BH silfur.


Í tvliðaleik karla sigruðu Emil Hechmann og Kristian Óskar Sveinbjörnsson BH og í öðru sæti urðu Einar Sverrisson og Ingólfur Ingólfsson TBR.



Í tvíliðaleik kvenna sigruðu Lilja Bu og Sigrún Marteinsdóttir TBR og í öðru sæti urðu Hrafnhildur Edda Ingvarsdóttir TBS og Katla Sól Arnarsdóttir BH.


Í tvenndarleik unnu Guðmundur Adam Gígja og Rakel Rut Kristjánsdóttir BH gull og Elis Tor Dansson TBR og Margrét Dís Stefánsdóttir UMFA silfur.


Úrslit í 2-deild:

Í einliðaleik karla vann Daníel Máni Einarsson TBR gull og Han Van Nguyen KR silfur.


Í einliðaleik kvenna sigraði Sunna Karen Ingvarsdóttir UMFA og í öðru sæti varð Lena Rut Gígja BH.


Í tvíliðaleik karla unnu feðgarnir Eggert Þorgrímsson og Eggert Þór Eggertsson TBR gull og Arnór Tumi Finnsson ÍA og Morten Wiborg UMF Fram silfur.


Í tvíliðaleik kvenna sigruðu Inga María Ottósdóttir og Sunna Karen Ingvarsdóttir UMFA og í öðru sæti urðu Hrafnhildur Magnúsdóttir og Iðunn Jakobsdóttir TBR.


Í tvenndarleik unnu Stefán Logi Friðriksson og Lena Rut Gígja BH gull og Adam Elí Ómarsson og Katla Sól Arnarsdóttir BH silfur.

Með því að smella hér er hægt að skoða öll nánari úrslit frá mótinu.

95 views0 comments
bottom of page