top of page
Search

ÚRSLIT Á TBR OPIÐ 2026, 10-11.okt.

laufey2
11 minutes ago
2 min read

TBR Opið 2026 fór fram um liðna helgi, 10 - 11 október, í TBR húsinu, Reykjavík. Alls tóku 101 keppandi þátt í mótinu, frá 5 félögum.


Keppt var í Úrvalsdeild, 1. deild og 2. deild í öllum greinum.

Mótið gefur stig á styrkleikalista og er hluti af fullorðinsmótaröð BSÍ.

Spilað var eftir nýju fyrirkomulagi upp í 15.


Úrslit urðu eftirfarandi:


Úrvalsdeild:

Í einliðaleik karla sigraði Gústav Nilsson TBR og Róbert Ingi Huldarsson BH varð í öðru sæti.


Í einliðaleik kvenna sigraði Iðunn Jakobsdóttir TBR og  Hrafnhildur Edda Ingvarsdóttir BH varð í öðru sæti.


Í tvíliðaleik karla unnu Daníel Jóhannesson og Davíð Bjarni Björnsson TBR gull og Róbert Ingi Huldarsson BH og Ikmal Hussain Jaafar TBS silfur.


Í tvíliðaleik kvenna unnu Arna Karen Jóhannsdóttir TBR og Natalía Ósk Óðinsdóttir BH gull og Sólrún Anna Ingvarsdóttir og Una Hrund Örvar BH silfur.


Í tvenndarleik unnu Davíð Bjarni Björnsson og Arna Karen Jóhannsdóttir TBR gull og Einar Óli Guðbjörnsson og Lilja Bu TBR silfur.



Úrslit í 1. deild :

Í einliðaleik karla vann Sebastían Amor Óskarsson TBS gull og Aron Óttarsson TBR silfur.



Í einliðaleik kvenna vann Sunna Karen Ingvarsdóttir UMFA gull og Þórdís Edda Pálmadóttir TBR silfur.



Í tvíliðaleik karla urðu Einar Óskarsson og Birkir Steinn Erlingsson TBR í fyrsta sæti og Einar Örn Þórsson og Stefán Eiríksson UMFA í öðru sæti.


Í tvíliðaleik kvenna urðu Margrét Dís Stefánsdóttir UMFA og Sigrún Marteinsdóttir TBR í fyrsta sæti og Inga María Ottósdóttir og Sunna Karen Ingvarsdóttir UMFA í öðru sæti.


Í tvenndarleik sigruðu Sebastían Vignisson og Sólrún Anna Ingvarsdóttir BH og Emil Víkingur Friðriksson og Þórdís Edda Pálmadóttir TBR lentu í öðru sæti.



Úrslit í 2. deild:

Í einliðaleik karla vann Birnir Hólm Bjarnason BH gull og Stefán Eiríksson UMFA silfur.



Í einliðaleik kvenna vann Sunna María Ingólfsdóttir UMFA gull og Rebekka Einarsdóttir Hamar silfur.


Í tvíliðaleik karla urðu Birnir Hólm Bjarnason og Hilmar Karl Kristjánsson BH í fyrsta sæti og Ástþór Gauti Þorvaldsson og Tuan Tat TBR í öðru sæti.


Í tvíliðaleik kvenna urðu Anna Bryndís Andrésdóttir og Sunna María Ingólfsdóttir UMFA í fyrsta sæti og Hrund Guðmundsdóttir og Rebekka Einarsdóttir Hamar í öðru sæti.


Í tvenndarleik unnu Haukur Þórðarson og Sigrún Marteinsdóttir TBR gull og Aqeel Ahmed TBR og Erla Rós heiðarsdóttir BH silfur.



Með því að smella hér er hægt að skoða nánar öll úrslit frá mótinu og fleiri myndir á facebook síðu TBR

 
 
 

Comments


©2017 BY BADMINTONSAMBAND ÍSLANDS. PROUDLY CREATED WITH WIX.COM

  • facebook
bottom of page