top of page
Search
  • bsí

Ný reglugerð um samkomutakmarkanir tekur gildi 10. nóvember og munu gilda til og með 8. desember.

Updated: Nov 10, 2021

Á morgun 10. nóvember tekur gildi ný reglugerð um samkomutakmarkanir sem mun gilda til og með 8. desember.


Hér að neðan má sjá helstu reglur er snerta íþróttahreyfinguna.


Æfingar og keppnir:

  • Almennar fjöldatakmarkanir fara úr 2.000 í 500 manns og heimilt verður að hafa allt að 500 manns á æfingum og í keppnum.

  • Sem fyrr skal sótthreinsa áhöld og aðra sameiginlega snertifleti milli hópa.

  • Engin blöndun má vera milli hópa ef skipt er upp í hólf vegna fjöldatakmarkana.

  • Börn fædd 2006 og fyrr eru undanþegin grímuskyldu, fjölda- og nálægðartakmörkunum.

Áhorfendasvæðin:

  • Heimilt verður að hafa allt að 500 manns í hólfi í áhorfendasvæðum en allt að 1500 manns í hólfi þar sem krafist verður hraðprófa (sem má ekki vera eldra en 48 klst.).

  • Skráningarskylda verður tekin upp á ný og skylt að skrá áhorfendur með nafni, símanúmeri og kennitölu, hvort sem hraðpróf eru notuð eða ekki.

  • Grímuskylda gildir í áhorfendasvæðum hvort sem hraðpróf eru notuð eða ekki.

  • Almennt er 1 metra regla í gildi í samfélaginu en þrátt fyrir það verður heimilt að sitja í hverju sæti í áhorfendasvæðum, að því gefnu að önnur skilyrði séu uppfyllt (grímuskylda og skráningarskylda).

  • Börn fædd 2006 og fyrr eru undanþegin grímuskyldu, fjölda- og nálægðartakmörkunum.

Heilbrigðisyfirvöld hvetja alla til þess að nota hraðpróf reglulega, bæði á viðburðum og í sínu daglega lífi.


Að lokum vill Íþrótta- og Ólympíusamband Íslands minna alla á mikilvægi þess að gæta vel að persónubundnum sóttvörnum.


Hér má finna tilmæli og reglur varðandi framkvæmd æfinga og keppni vegna Covid-19.




52 views0 comments
bottom of page